RSS
Póstlisti
Samband

RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmála

17/11/2008

Hagfræði í hnotskurn

Bókafélagið Ugla og RSE hafa gefið út hið sígilda hagfræðirit Hagfræði í hnotskurn eftir Henry Hazlitt, í íslenskri þýðingu Haraldar Johannessen ritstjóra Viðskiptablaðsins. Í ritinu dregur Hazlitt saman ýmis grunnatriði hagfræðinnar og fjallar að auki um ýmsar hagfræðilegar ranghugmyndir sem sífellt skjóta upp kollinum í þjóðfélagsumræðunni. Fyrsta útgáfa kom út árið 1946 og varð strax metsölubók. Hefur hún selst í yfir milljón eintaka.

Lesa meira »

31/10/2008

Advances in Rights Based Fishing

Út er komið nýtt rit í ritröð fræðirita RSE, Advances in Rights Based Fishing (Extending the Role of Property in Fisheries Management). Í ritinu eru birtar ritgerðir sem byggja á erindum af ráðstefnu RSE um sjávarútvegsmál, sem haldin var haustið 2006. Í ritinu eru settar fram veigamiklar röksemdir fyrir því að hlutur eignarréttar við stjórn fiskveiða verði aukinn og stungið upp á leiðum í því efni.

Lesa meira »

24/09/2008

Frelsisvísitalan 2008

Í nýrri skýrslu, sem RSE sendir frá sér í dag, eru birtar niðurstöður alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar á efnahagslegu frelsi í heiminum. Þar kemur fram að Ísland er í 12. sæti á lista 141 lands sem rannsóknin nær til. Góð staða Íslands helgast einkum af sterkum lagalegum og pólitískum innviðum, ríkri vernd eignarréttar og ekki mjög íþyngjandi regluverki í viðskiptaumhverfi fyrirtækja og á vinnumarkaði sé borið saman við önnur lönd. Skortur á aðgangi að traustum gjaldmiðli, of mikil umsvif hins opinbera og takmarkanir í alþjóðaviðskiptum draga Íslendinga niður í samanburðinum.
Lesa meira »

2/05/2008

Hugmyndasamkeppni

RSE hefur ákveðið að ráðast í gerð námsefnis í hagfræði, sem einkum geti nýst til kennslu í framhaldsskólum, en jafnframt gagnast öllum almenningi. Vonir standa til þess að verkefnið auki fjölbreytni og framboð námsefnis á þessu sviði. Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni í samfélaginu, þar sem öllum gefst kostur á að senda tillögur um hvernig slíkt námsefni  yrði best úr garði gert. Sérstök verðlaun verða veitt bestu hugmyndunum. RSE hefur sérstaklega hvatt til þátttöku, alla sem hafa reynslu í kennslu viðskipta- og hagfræðigreina í framhaldsskólum. Skilafrestur er 13. júní næstkomandi.
Lesa meira »

29/04/2008

Þjóðareign á PDF

Fyrir rúmu ári gaf RSE út ritgerðarsafnið Þjóðareign, þar sem fjallað var um hugmyndir um að festa í stjórnarskrá ákvæði um „þjóðareign“ á auðlindum sjávar. Nú hefur RSE ákveðið að gera ritið aðgengilegt á PDF-formi á netinu. Ritið er að finna hér. Höfundar efnis eru Davíð Þorláksson lögfræðingur, Guðrún Gauksdóttir dósent, Ragnar Árnason prófessor, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri og Sigurður Líndal prófessor. Ristjóri er Birgir Tjörvi Pétursson framkvæmdastjóri RSE.
Lesa meira »

13/03/2008

Eignarréttarvísitalan 2008 komin út

Alþjóðlega eignarréttarvísitalan 2008 (e. International Property Rights Index.), sem mælir samband verndar eignarréttar og auðlegðar í 115 ríkjum víðs vegar um heim er komin út. Skýrslan er gefin út í samstarfi yfir 40 sjálfstæðra stofnana í 6 heimsálfum. RSE, Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál, annast dreifingu og kynningu skýrslunnar á Íslandi. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þjóðarframleiðsla á mann sé allt að því níu sinnum meiri í ríkjum þar sem eignarréttur nýtur ríkrar verndar heldur en þar sem slík vernd er lítil sem engin. Þjóðfélög sem tryggja eignarréttarvernd hafa þar með lagt grunninn að friði, stöðugleika og velmegun, ef marka má niðurstöður rannsóknanna, sem ná til 115 ríkja, sem standa undir um 96% þjóðarframleiðslu í heiminum.
Lesa meira »

25/02/2008

Cutting Taxes to Increase Prosperity

Út er komin ný bók í ritröð fræðirita hjá RSE. Heiti bókarinnar er Cutting Taxes to Increase Prosperity (Skattalækkanir til kjarabóta) og er um að ræða safn ritgerða um skattamál. Ristjórar bókarinnar eru Hannes H. Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Tryggvi Þór Herbertsson forstjóri Aska Capital. Meðal höfunda eru Edward Prescott nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, Fredrik Bergström framkvæmdastjóri rannsóknarseturs verslunarinnar í Svíþjóð, Brendan Walsh hagfræðiprófessor við University College í Dublin, Daniel Mitchell skattasérfræðingur hjá Cato stofnuninni í Washington, Pierre Bessard forstöðumaður Constant de Rebecque-stofnunarinnar í Lausanne í Sviss, Ragnar Árnason hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands og Pascal Salin hagfræðiprófessor við Paris-Dauphine háskólann.

Lesa meira »

5/09/2007

Efnahagslegt frelsi í heiminum 2007

Hong Kong trónir enn eitt árið í efsta sæti í alþjóðlegum samanburði á efnahagslegu frelsi landa. Singapúr er skammt undan í öðru sæti og Nýja-Sjálandi í því þriðja, samkvæmt skýrslunni Efnhagslegt frelsi í heiminum 2007, sem RSE hefur sent frá sér. Ísland er í ellefta sæti ásamt Finnlandi, Lúxemborg og Chile, niður um tvö sæti frá því í skýrslunni árið 2006.
Lesa meira »

5/06/2007

Ritgerð um samkeppnismál

Út er komin ný skýrsla um samkeppnismál, Greining samkeppnisumhverfis: Samantekt um nokkra helstu þætti sem hafa áhrif á hættu á myndun samkeppnishindrana. Meginefni skýrslunnar eftir Þorstein Siglaugsson hagfræðing og rekstrarráðgjafa hjá Sjónarrönd ehf., sem unnin er fyrir RSE, er samantekt um þær aðferðir sem almennt er beitt af fyrirtækjum, ráðgjöfum og greiningaraðilum til að meta samkeppnisumhverfi atvinnugreina. Markmiðið er að skoða hvort og hvernig slíkar aðferðir geta nýst samkeppnisyfirvöldum við mat á því, hvort breytingar á markaði leiði til samkeppnishindrana sem valda óhagkvæmni og kostnaði fyrir neytendur.
Lesa meira »

29/05/2007

Samkeppnishindranir: Ný skýrsla og málfundur 5. júní

Þriðjudaginn 5. júní næstkomandi stendur RSE, í samvinnu við Háskólann í Reykjavík, fyrir málfundi um samkeppnishindranir á markaði og aðgerðir til að ryðja þeim úr vegi, í tilefni af útkomu nýrrar skýrslu RSE um efnið. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík kl. 9-11.30

Lesa meira »

14/03/2007

Rit um Þjóðareign komið út

Bókafélagið Ugla hefur í samstarfi við RSE gefið út ritið:
Þjóðareign: Þýðing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Um er að ræða ritgerðarsafn RSE, sem er hluti af ritröð fræðirita RSE. Höfundar efnis eru Davíð Þorláksson lögfræðingur, Guðrún Gauksdóttir dósent, Ragnar Árnason prófessor, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri og Sigurður Líndal prófessor emeritus. Ristjóri er Birgir Tjörvi Pétursson framkvæmdastjóri RSE.
Lesa meira »

14/12/2006

Yfirgefum G10

Undanfarinn áratug hefur Ísland siglt hraðbyri í frjálsræðisátt. Fjármagnsflutningar hafa verið gefnir frjálsir, skikki komið á ríkisfjármálin og skuldir greiddar, ríkisfyrirtæki einkavædd, skattar á fyrirtæki lækkaðir og rammi hagstjórnar er orðinn eins og best verður á kosið. Á einu sviði hefði þó mátt ganga hraðar fram – á vettvangi alþjóðaviðskipta. Á Íslandi ríkir afturhald þegar kemur að fríverslun með landbúnaðarvörur og til marks um það er landið í hópi hinna svo kölluðu G10-landa, en það eru lönd sem eru með mestu verndarstefnuna í landbúnaðarmálum af öllum löndum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).

Lesa meira »

29/09/2006

Ritgerð um landbúnað og alþjóðaviðskipti

Í ljósi umræðu um landbúnaðarmál á Íslandi er ástæða til að vekja sérstaka athygli á riti sem kom út hjá RSE fyrir rétt tæpu ári eftir Tryggva Þór Herbertsson prófessor og hagfræðingana Halldór Benjamín Þorbergsson og Rósu Björk Sveinsdóttur, um Ísland og alþjóðaviðskipti. Í ritinu er fullyrt að á Íslandi ríki afturhald þegar kemur að fríverslun með landbúnaðarafurðir.
Lesa meira »

7/09/2006

Efnahagslegt frelsi 2006

Efnahagslegt frelsi er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina, samkvæmt hinni árlegu skýrslu um efnahagslegt frelsi í heiminum (e. Economic Freedom of the World: 2006 Annual Report), sem gefin er út í dag af RSE.
Lesa meira »

25/05/2006

Landið frelsað: Rökin fyrir einkaframtaki í skipulagsmálum

Á dögunum hélt Dr. Mark Pennington, lektor hjá Queen Mary’s College, University of London, erindi á málfundi RSE, sem haldinn var í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, þar sem hann fór yfir rökin fyrir einkaframtaki í skipulagsmálum. Hér er aðgengileg á PDF-formi bók Penningtons um efnið sem kom út árið 2002. Bók Penningtons var gefin út af Institute of Economic Affairs í London.
Lesa meira »

30/01/2006

Leyndardómur fjármagnsins

Leyndardómur fjármagnsins kom fyrst út á árinu 2000 og hefur vakið mikla athygli og umtal. Þýðingin er sú fyrsta í röð þýðinga á mikilvægum ritum um nútíma efnahagsmál sem RSE hyggst gefa út. Bókina þýddi Árni Óskarsson. Jónas Haralz las þýðinguna yfir og lagfærði. Ritstjórn var í höndum Ragnars Árnasonar og Birgis Þórs Runólfssonar, sem jafnframt rituðu inngang þar sem þeir gera tilraun til að setja kenningar de Sotos í víðara fræðilegt og sögulegt samhengi.
Lesa meira »

14/12/2005

Ný ritgerð: Ísland og alþjóðaviðskipti

Í dag kom út ritgerð Tryggva Þórs Herbertssonar prófessors við HÍ og hagfræðinganna Halldórs Benjamíns Þorbergssonar og Rósu Bjarkar Sveinsdóttur um Ísland og alþjóðaviðskipti, sem unnin var fyrir RSE.

Lesa meira »

1/12/2005

Frelsisvísitalan 2005

Ísland lenti í 13. sæti af 127 þjóðum í nýjustu könnun Fraser stofnunarinnar og tengdra stofnana á efnahagslegu frelsi, með 7,7 í einkunn af 10 mögulegum. Könnunin var birt í septembermánuði og miðaðist við gögn og upplýsingar frá árinu 2003.
Lesa meira »

30/11/2005

RSE vinnur að frelsisvísitölunni

RSE hefur formlega gerst aðili að samstarfsverkefni 68 rannsóknarstofnana um víða veröld, sem ber heitið Frelsisvísitalan (e. Freedom Index). Markmið verkefnisins er bera saman frelsi efnahagsmálum um víða veröld og efla umræðu um þýðingu þess fyrir lífskjör og velferð. Verkefnið er rekið af Samtökum um efnahagsfrelsi (e. Economic Freedom Network), en frumkvæðið að því átti Fraser stofnunin í Kanada undir forystu Miltons Friedmans nóbelsverðlaunahafa í hagfræði um miðjan níunda áratuginn.
Lesa meira »