Bókafélagið Ugla og RSE hafa gefið út hið sígilda hagfræðirit Hagfræði í hnotskurn eftir Henry Hazlitt, í íslenskri þýðingu Haraldar Johannessen ritstjóra Viðskiptablaðsins. Í ritinu dregur Hazlitt saman ýmis grunnatriði hagfræðinnar og fjallar að auki um ýmsar hagfræðilegar ranghugmyndir sem sífellt skjóta upp kollinum í þjóðfélagsumræðunni. Fyrsta útgáfa kom út árið 1946 og varð strax metsölubók. Hefur hún selst í yfir milljón eintaka.
Advances in Rights Based Fishing
Út er komið nýtt rit í ritröð fræðirita RSE, Advances in Rights Based Fishing (Extending the Role of Property in Fisheries Management). Í ritinu eru birtar ritgerðir sem byggja á erindum af ráðstefnu RSE um sjávarútvegsmál, sem haldin var haustið 2006. Í ritinu eru settar fram veigamiklar röksemdir fyrir því að hlutur eignarréttar við stjórn fiskveiða verði aukinn og stungið upp á leiðum í því efni.
Þjóðareign á PDF
Fyrir rúmu ári gaf RSE út ritgerðarsafnið Þjóðareign, þar sem fjallað var um hugmyndir um að festa í stjórnarskrá ákvæði um „þjóðareign“ á auðlindum sjávar. Nú hefur RSE ákveðið að gera ritið aðgengilegt á PDF-formi á netinu. Ritið er að finna hér. Höfundar efnis eru Davíð Þorláksson lögfræðingur, Guðrún Gauksdóttir dósent, Ragnar Árnason prófessor, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri og Sigurður Líndal prófessor. Ristjóri er Birgir Tjörvi Pétursson framkvæmdastjóri RSE.
Lesa meira »
Cutting Taxes to Increase Prosperity
Út er komin ný bók í ritröð fræðirita hjá RSE. Heiti bókarinnar er Cutting Taxes to Increase Prosperity (Skattalækkanir til kjarabóta) og er um að ræða safn ritgerða um skattamál. Ristjórar bókarinnar eru Hannes H. Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Tryggvi Þór Herbertsson forstjóri Aska Capital. Meðal höfunda eru Edward Prescott nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, Fredrik Bergström framkvæmdastjóri rannsóknarseturs verslunarinnar í Svíþjóð, Brendan Walsh hagfræðiprófessor við University College í Dublin, Daniel Mitchell skattasérfræðingur hjá Cato stofnuninni í Washington, Pierre Bessard forstöðumaður Constant de Rebecque-stofnunarinnar í Lausanne í Sviss, Ragnar Árnason hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands og Pascal Salin hagfræðiprófessor við Paris-Dauphine háskólann.
Rit um Þjóðareign komið út
Bókafélagið Ugla hefur í samstarfi við RSE gefið út ritið:
Þjóðareign: Þýðing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Um er að ræða ritgerðarsafn RSE, sem er hluti af ritröð fræðirita RSE. Höfundar efnis eru Davíð Þorláksson lögfræðingur, Guðrún Gauksdóttir dósent, Ragnar Árnason prófessor, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri og Sigurður Líndal prófessor emeritus. Ristjóri er Birgir Tjörvi Pétursson framkvæmdastjóri RSE.
Lesa meira »
Landið frelsað: Rökin fyrir einkaframtaki í skipulagsmálum
Á dögunum hélt Dr. Mark Pennington, lektor hjá Queen Mary’s College, University of London, erindi á málfundi RSE, sem haldinn var í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, þar sem hann fór yfir rökin fyrir einkaframtaki í skipulagsmálum. Hér er aðgengileg á PDF-formi bók Penningtons um efnið sem kom út árið 2002. Bók Penningtons var gefin út af Institute of Economic Affairs í London.
Lesa meira »
Leyndardómur fjármagnsins
Leyndardómur fjármagnsins kom fyrst út á árinu 2000 og hefur vakið mikla athygli og umtal. Þýðingin er sú fyrsta í röð þýðinga á mikilvægum ritum um nútíma efnahagsmál sem RSE hyggst gefa út. Bókina þýddi Árni Óskarsson. Jónas Haralz las þýðinguna yfir og lagfærði. Ritstjórn var í höndum Ragnars Árnasonar og Birgis Þórs Runólfssonar, sem jafnframt rituðu inngang þar sem þeir gera tilraun til að setja kenningar de Sotos í víðara fræðilegt og sögulegt samhengi.
Lesa meira »