Í nýrri skýrslu, sem RSE sendir frá sér í dag, eru birtar niðurstöður alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar á efnahagslegu frelsi í heiminum. Þar kemur fram að Ísland er í 12. sæti á lista 141 lands sem rannsóknin nær til. Góð staða Íslands helgast einkum af sterkum lagalegum og pólitískum innviðum, ríkri vernd eignarréttar og ekki mjög íþyngjandi regluverki í viðskiptaumhverfi fyrirtækja og á vinnumarkaði sé borið saman við önnur lönd. Skortur á aðgangi að traustum gjaldmiðli, of mikil umsvif hins opinbera og takmarkanir í alþjóðaviðskiptum draga Íslendinga niður í samanburðinum.
Lesa meira »
Frelsisvísitalan 2008
Eignarréttarvísitalan 2008 komin út
Alþjóðlega eignarréttarvísitalan 2008 (e. International Property Rights Index.), sem mælir samband verndar eignarréttar og auðlegðar í 115 ríkjum víðs vegar um heim er komin út. Skýrslan er gefin út í samstarfi yfir 40 sjálfstæðra stofnana í 6 heimsálfum. RSE, Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál, annast dreifingu og kynningu skýrslunnar á Íslandi. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þjóðarframleiðsla á mann sé allt að því níu sinnum meiri í ríkjum þar sem eignarréttur nýtur ríkrar verndar heldur en þar sem slík vernd er lítil sem engin. Þjóðfélög sem tryggja eignarréttarvernd hafa þar með lagt grunninn að friði, stöðugleika og velmegun, ef marka má niðurstöður rannsóknanna, sem ná til 115 ríkja, sem standa undir um 96% þjóðarframleiðslu í heiminum.
Lesa meira »
Efnahagslegt frelsi í heiminum 2007
Hong Kong trónir enn eitt árið í efsta sæti í alþjóðlegum samanburði á efnahagslegu frelsi landa. Singapúr er skammt undan í öðru sæti og Nýja-Sjálandi í því þriðja, samkvæmt skýrslunni Efnhagslegt frelsi í heiminum 2007, sem RSE hefur sent frá sér. Ísland er í ellefta sæti ásamt Finnlandi, Lúxemborg og Chile, niður um tvö sæti frá því í skýrslunni árið 2006.
Lesa meira »
Ritgerð um samkeppnismál
Út er komin ný skýrsla um samkeppnismál, Greining samkeppnisumhverfis: Samantekt um nokkra helstu þætti sem hafa áhrif á hættu á myndun samkeppnishindrana. Meginefni skýrslunnar eftir Þorstein Siglaugsson hagfræðing og rekstrarráðgjafa hjá Sjónarrönd ehf., sem unnin er fyrir RSE, er samantekt um þær aðferðir sem almennt er beitt af fyrirtækjum, ráðgjöfum og greiningaraðilum til að meta samkeppnisumhverfi atvinnugreina. Markmiðið er að skoða hvort og hvernig slíkar aðferðir geta nýst samkeppnisyfirvöldum við mat á því, hvort breytingar á markaði leiði til samkeppnishindrana sem valda óhagkvæmni og kostnaði fyrir neytendur.
Lesa meira »
Samkeppnishindranir: Ný skýrsla og málfundur 5. júní
Þriðjudaginn 5. júní næstkomandi stendur RSE, í samvinnu við Háskólann í Reykjavík, fyrir málfundi um samkeppnishindranir á markaði og aðgerðir til að ryðja þeim úr vegi, í tilefni af útkomu nýrrar skýrslu RSE um efnið. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík kl. 9-11.30
Efnahagslegt frelsi 2006
Efnahagslegt frelsi er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina, samkvæmt hinni árlegu skýrslu um efnahagslegt frelsi í heiminum (e. Economic Freedom of the World: 2006 Annual Report), sem gefin er út í dag af RSE.
Lesa meira »
Frelsisvísitalan 2005
Ísland lenti í 13. sæti af 127 þjóðum í nýjustu könnun Fraser stofnunarinnar og tengdra stofnana á efnahagslegu frelsi, með 7,7 í einkunn af 10 mögulegum. Könnunin var birt í septembermánuði og miðaðist við gögn og upplýsingar frá árinu 2003.
Lesa meira »
RSE vinnur að frelsisvísitölunni
RSE hefur formlega gerst aðili að samstarfsverkefni 68 rannsóknarstofnana um víða veröld, sem ber heitið Frelsisvísitalan (e. Freedom Index). Markmið verkefnisins er bera saman frelsi efnahagsmálum um víða veröld og efla umræðu um þýðingu þess fyrir lífskjör og velferð. Verkefnið er rekið af Samtökum um efnahagsfrelsi (e. Economic Freedom Network), en frumkvæðið að því átti Fraser stofnunin í Kanada undir forystu Miltons Friedmans nóbelsverðlaunahafa í hagfræði um miðjan níunda áratuginn.
Lesa meira »