RSS
Póstlisti
Samband

RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmála

20/05/2010

Sumarháskóli RSE 2010: Barátta hugmyndanna

Sumarháskóli RSE verður starfræktur í fimmta sinn. Í ár verður fjallað um ýmsar grundvallarspurningar um hugmyndafræði stjórnmála og efnahagsmála, undir yfirskriftinni Barátta hugmyndanna. Á hvaða grunni verður samfélag nýrra tíma reist?

Í Sumarháskóla RSE verður sem endranær boðið upp á fróðlega fyrirlestra og örvandi umræður. Meðal annars verður fjallað um fjármálakerfi og gjaldmiðla, markaðsfrelsi og höft, opinbera reglusetningu, einkarekstur, ríkisrekstur og markaðsbresti, pólitíska rétthugsun, hina svokölluðu bannvæðingu og margt margt fleira.

Kennsla, gisting og málsverðir eru innifaldir í þátttökugjaldi sem er aðeins krónur 5.000. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir ungt áhugafólk um þjóðfélagsmál til að kynnast nýju fólki og nýjum hugmyndum.

Vilt þú taka þátt?
Sendu umsókn á gislifreyr@simnet.is eða hafðu samband í síma 899 5926.

Dagskrá Sumarháskóla RSE verður kynnt hér á síðunni von bráðar.