Rannsóknarmiðstöð
um samfélags- og efnahagsmál
(RSE)
Skipulagsskrá
1. gr.
Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) er sjálfseignarstofnun. Heimili og varnarþing hennar er í Reykjavík.
2. gr.
Markmið stofnunarinnar er að auka skilning á mikilvægi frjálsra viðskipta og eignaréttinda fyrir lýðræðislegt og framsækið þjóðfélag.
Markmiðunum skal ná með rannsóknum, fræðslu, útgáfu, ráðstefnum og annarri þeirri starfsemi sem er til þess fallin að markmiðin náist.
3. gr.
Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál er sjálfstæð og óháð stofnun. Hún hefur engin tengsl við stjórnmálaflokka, einstök framboð eða hagsmunasamtök. Hún þiggur ekki fjárframlög frá ríki eða sveitarfélögum. Hún er ekki rekin í atvinnu- eða hagnaðarskyni.
4. gr.
Fulltrúaráð stofnunarinnar fer með æðsta vald um eignir, fjárhag og rekstur stofnunarinnar.
Fulltrúaráðið skal skipað 5 mönnum hið minnsta og 30 hið mesta. Að auki eiga formaður rannsóknarráðs og framkvæmdastjóri sjálfkrafa sæti í fulltrúaráðinu.
Fulltrúaráðið skal í upphafi tilnefnt af stofnendum. Fulltrúaráðið kýs síðan sjálft nýja fulltrúa samkvæmt tilnefningu a.m.k. tveggja fulltrúa. Þarf 2/3 atkvæða á fundi til að tilnefndur aðili setjist í fulltrúaráðið. Kjörtímabil hvers fulltrúa er 5 ár. Heimilt er að endurkjósa fulltrúa í lok kjörtímabils. Fulltrúaráðið getur vikið frá fulltrúa og þarf til þess ¾ atkvæða á fundi.
Fulltrúaráðið kýs úr sínum röðum formann, féhirði og ritara til þriggja ára í senn. Fulltrúaráðið heldur aðalfund einu sinni hvert almanaksár, og aðra fundi eftir því sem ástæða er til og skal til þeirra boðað með tryggilegum hætti. Á aðalfundi skal fjallað um skýrslu stjórnar, um starfsemi liðins árs og um starfsemi næsta árs, þ. á m. um rannsóknaráætlun. Fundur er lögmætur ef meirihluti fulltrúa situr hann. Meirihluti atkvæða á fundi ræður úrslitum mála sé annað ekki tekið fram, sbr. 3. mgr. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði forseta. Engin laun eða þóknun eru greidd fyrir setu í fulltrúaráðinu. Fundir skulu ritaðir í gerðabók.
5. gr.
Stjórn stofnunarinnar annast rekstur hennar og fer með fjárvörslu milli funda fulltrúaráðsins.
Stjórnina skipa fimm menn: Formaður fulltrúaráðs, féhirðir og ritari og formaður og varaformaður rannsóknarráðs. Stjórnin skal funda reglulega og skulu fundir skráðir í gerðabók. Engin laun eða þóknun eru greidd fyrir setu í stjórn.
6. gr.
Rannsóknarráð fer með æðsta vald um þau verkefni sem ráðist er í á vegum stofnunarinnar í þágu markmiða hennar, sbr. 2. mgr. 2. gr.
Rannsóknarráðið skal skipað 5 mönnum hið minnsta og 20 hið mesta. Kjörtímabil ráðsmanns er 5 ár.
Rannsóknarráðið skal í upphafi tilnefnt af stofnendum. Rannsóknarráðið tilnefnir síðan sjálft nýja ráðsmenn, en staðfestingu stjórnar þarf þó til að hún öðlist gildi. Til setu í rannsóknarráðinu skulu aðeins veljast vísinda- og fræðimenn í fremstu röð. Engin laun eða þóknun eru greidd fyrir setu í rannsóknarráði.
Rannsóknarráðið kýs formann og varaformann ráðsins, en staðfestingu stjórnar þarf þó til að hún öðlist gildi. Kjörtímabil þeirra er 3 ár. Formaður rannsóknarráðs stýrir rannsóknarverkefnum stofnunarinnar.
Formaður rannsóknarráðs setur fram rannsóknaráætlun fyrir upphaf almannaksárs og semur skýrslu um rannóknarstarfsemi stofnunarinnar í lok hvers almannaksárs.
7. gr.
Stjórn stofnunarinnar ræður framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur stofnunarinnar og ber ábyrgð á rekstrinum gagnvart stjórninni. Hann ræður starfsmenn og víkur þeim frá, hvort tveggja í samráði við stjórnina.
Framkvæmdastjóri semur rekstraráætlun fyrir upphaf reikningsárs og skýrslu um starfsemi stofnunarinnar í lok hvers reikningsárs.
Framkvæmdastjóri og formaður rannsóknarráðs ákvarða í sameiningu fjárveitingar til einstakra rannsóknarverkefna.
8. gr.
Stofnfé stofnunarinnar er kr. 1.000.000, sem stofnendur leggja fram, þar af er kr. 600.000 óskerðanlegt stofnfé.
Stofnunin þiggur fjárframlög og styrki frá einstaklingum, samtökum, stofnunum og fyrirtækjum er vilja veita markmiðum hennar brautargengi, en þó aðeins ef þeim fylgja ekki kvaðir um ráðstöfun eða nýtingu.
Á hverju ári er fulltrúaráði stofnunarinnar heimilt að veita allt að helmingi fjármuna hennar til rannsóknarverkefna, þó ekki af óskerðanlegu stofnfé.
Stofnunin getur tekið þátt í rannsóknarverkefnum annarra aðila og stofnana og lagt starfskrafta og fjármagn til þeirra.
Stofnunin getur ákveðið að selja einstök útgáfuverk sín og aðgang að ráðstefnum í þeim tilgangi að endurheimta útlagðan kostnað.
9. gr.
Reikningsár stofnunarinnar er almannaksárið. Fulltrúaráðið skal samþykkja og birta ársreikning hennar á aðalfundi. Ársreikningur skal endurskoðaðaður af löggiltum endurskoðanda sem kjörinn er af fulltrúaráðinu. Reikningar stofnunarinnar skulu eigi síðar en 30. júní ár hvert sendir ríkisendurskoðun, í samræmi við ákvæði 3. gr. laga nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
10. gr.
Afgangi eða halla af rekstri skal ráðstafa til hækkunar eða lækkunar á eigin fé stofnunarinnar.
Stofnunin verður ekki lögð niður nema með samþykki 3/4 atkvæða á fundi fulltrúaráðsins og skal þá ráðstafa hreinni eign með hliðsjón af markmiðum hennar, sbr og 6. gr. laga nr. 19/1988.
Breytingar á skipulagsskrá verða gerðar að tillögu stjórnar með samþykki ¾ atkvæða á fundum fulltrúaráðs, að fenginni umsögn Ríkisendurskoðunar sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 19/1988. Markmiðum stofnunarinnar, sbr. 2. gr., er óheimilt að breyta.
11. gr.
Leita skal staðfestingar á skipulagsskrá þessari hjá dómsmálaráðuneytinu samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Framangreint staðfest af stofnendum í Reykjavík þann 10. september 2004:
Jóhann Ólafsson
(sign)
Jónas Haralz
(sign)
Birgir Þór Runólfsson
(sign)
Ragnar Árnason
(sign)
Birgir Tjörvi Pétursson
(sign)