RSS
Póstlisti
Samband

RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmála

14/08/2007

Alþjóðavæðing og gjaldmiðlar

Fimmtudaginn 23. ágúst næstkomandi mun RSE standa fyrir ráðstefnu um áhrif aukins efnahagslegs frelsis á stöðu gjaldmiðla í heiminum. Framsögumenn verða Benn Steil, forstöðumaður alþjóðahagfræðisviðs hjá Council on Foreign Relations, Gabriel Stein, aðalhagfræðingur alþjóðahagfræðisviðs hjá Lombard Street Research, Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador og Ársæll Valfells, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Ráðstefnan verður á Hótel Nordica (salur H+I) og stendur milli kl. 16:10 og 18:30. Fundarstjóri er Illugi Gunnarsson, alþingismaður.


Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningunni um stöðu þjóðargjaldmiðla s.s. krónunnar á tímum aukinnar alþjóðavæðingar og efnahagslegs frelsis. Ennfremur verður velt upp spurningunni um hvort nauðsynlegt sé fyrir smáríki að gerast aðili að myntbandalagi til að taka upp aðra mynt. Þá verður litið til ríkja sem hafa tekið upp aðra mynt en sína eigin, hvernig það var gert og hvernig það hefur reynst.

Ráðstefnan er opin öllum

Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir:

16:10 Setningarávarp
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra

16:15 Endalok þjóðargjaldmiðla
Benn Steil, forstöðumaður alþjóðahagfræðisviðs hjá Council on Foreign Relations.

16:35 Smáríki og myntbandalög
Gabriel Stein, aðalhagfræðingur alþjóðahagfræðisviðs hjá Lombard Street Research

16:55 Dollaravæðing, skref fyrir skref
Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador

Kaffihlé

17:30 Staða íslensku krónunnar
Ársæll Valfells, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands

17:50 Pallborðsumræður
Auk framsögumanna verða Ólafur Ísleifsson lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, Þórarinn G. Pétursson staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands og Heiðar Guðjónsson framkvæmdastjóri hjá Novator þátttakendur í pallborði.

Um framsögumenn
Hér má finna nánari upplýsingar um framsögumenn:
Benn Steil
Gabriel Stein
Manuel Hinds
Ársæll Valfells